
Námskeið fyrir fullorðna
Skák fyrir byrjendur
Sex vikur, tvö kvöld í viku, klukkustund í senn.
- Hefst
- 2. nóv.
- Dagar
- Mán. og mið.
- Tími
- Kl. 20:00
- Verð
- 19.900 kr.
Hvar Hús taflfélagsins, Heiðarvegi 9a
Skráðu þig
Við höfum samband með nánari upplýsingar.
Um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað fullorðnum og hentar vel þeim sem vilja taka sín fyrstu skref í skák eða rifja upp gamla takta.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að þekkja grunnatriði skákarinnar og hafa öðlast betri tilfinningu fyrir leiknum. Umfram allt er markmiðið þó að virkja leikgleðina og keppnisskapið.
Kennarinn
Auðunn Haraldsson
Ég hef samhliða mínu aðalstarfi sem tónlistarkennari kennt börnum skák hjá Taflfélagi Vestmannaeyja. Ég er með kennsluréttindi frá Evrópska skáksambandinu (European Chess Union).
Mögulegar spurningar
Þarf ég að taka eitthvað með mér?
Nei. Í taflfélaginu er allt til alls.
Er aldurstakmark?
Lágmarksaldur er 13 ára. Þar er aðallega tekið mið af útivistartíma barna og unglinga, sem er til kl. 22. Námskeiðið er þó fyrst og fremst ætlað fullorðnum og krökkum sem vilja tefla er bent á byrjendatímana okkar á laugardagsmorgnum kl. 10:40. Hins vegar tel ég það vera mikilvægt að vera ekki að loka á það að foreldrar og börn þeirra sem hafa náð 13 ára aldri mæti saman á námskeiðið.
Ég fékk tölvupóst um að skrá mig á Lichess. Hvað er það?
Í upphafi námskeiðsins skrá þátttakendur sig á lichess.org. Síðan er ókeypis og án auglýsinga og hefur allt sem þarf til að byrja að tefla á netinu af krafti. Á námskeiðinu sjálfu er þó teflt á taflborði en ekki á netinu, svo Lichess er öflugt tól frekar en miðpunktur námskeiðsins.
Hvað ef ég missi af tíma?
Í byrjun hvers tíma er stutt upprifjun á efni síðasta tíma. Í lok námskeiðsins fá þátttakendur auk þess glærukynningu með öllu efninu sem farið var yfir.
Er lágmarks- eða hámarksskráning?
Enginn sérstakur lágmarksfjöldi né hámarksfjöldi er á námskeiðinu.
Get ég hætt við?
Já. Þú getur hætt við og fengið fulla endurgreiðslu fram að lokum fyrsta tíma. Eftir það er ekki endurgreitt.
Hvað tekur við eftir námskeiðið?
Þá stendur til boða að taka þátt í starfi taflfélagsins. Þar er góður hópur sem tekur nýliðum fagnandi.
Is the course taught in English?
The course is taught in Icelandic. If enough participants are interested in a course in English, we are open to finding another time for it.